ÍSLENZK EX LIBRIS
Bókmerkjasafn Ólafs F. Hjartar
Bókmerki er persónulegt merki, prentað og límt eða stimplað innan eða utan á spjald bóka. Merkið er hægt að fjöldaframleiða með það markmið að merkja bækur eigandanum. Merkin eru falleg lítil listaverk, útbúin af eigendum eða af listamönnum. Þessi bók er um bókmerkjasafn Ólafs bókavarðar. Ólafur safnaði lengi bókmerkjum og átti stórt safn af slíkum merkjum. Ég nálgaðist bókmerkjasafnið á Landsbókasafni Íslands, fannst það synd að merkin væru ekki til sýnis þar og vildi gefa þeim líf utan kassans þar sem þau eru geymd. Bókmerki eru oft tengd latneska heitinu ex libris og flest bókmerkin í safninu eru ex libris merki. Það var bókmerki afa míns sem kom mér til að vilja kanna bókmerki betur og leiddi mig á þessa skemmtilegu braut. Þessi bók er tilraun mín til að sýna hvað mér þykir áhugavert og fagurt við bókmerkin og menninguna sem þau endurspegla.
Tilnefnd til FÍT verðlauna 2026
Styrkt af Hönnunarmiðstöð Íslands
![]()
Ólafur F.
Þessi bók er um bókmerkjasafn Ólafs F. Þar er að finna fjölda íslenskra bókmerkja sem hann safnaði yfir áratuga tímabil. Ólafur fæddist árið 1918 og lést árið 2006. Hann vann lengi sem bókavörður á Landsbókasafni Íslands en bókmerkjasafn hans er varðveitt þar í dag.
Ég rakst fyrst á bókmerki þegar ég sá merki afa míns í bókasafni hans og þótti það í raun ekki sérstaklega merkilegt því ég var það ungur að ég áttaði mig ekki á hversu fallegt eða sérstætt það væri að leggja vinnu og ástríðu í að merkja bækurnar sínar á listrænan og smekklegan hátt. Það var ekki fyrr en miklu seinna að ég áttaði mig á því að fæstir ættu sitt eigið bókmerki eða sáu tilgang í að eiga slík merki. Bókmerki eru mikilvægur hluti af sjónmenningarsögu Íslands og því fannst mér nauðsynlegt að kynnast þeim betur og var svo heppinn að fá aðgang að bókmerkjasafninu sem er geymt á Landsbókasafni Íslands.
Ólafur F. Hjartar fæddist árið 1918 á Suðureyri við Súgandafjörð. Hann var bindindismaður, orgelleikari og sendi frá sér nokkur rit. Hann lauk kennaraprófi árið 1942 og lærði bókasafnsfræði við School of Librarianship í Lundúnum stuttu eftir seinni heimsstyrjöldina árið 1946. Hann var einn af brautryðjendum bókvörslustarfs hér á landi en hann vann sem bókavörður á Landsbókasafni Íslands, á árunum 1957–1973. Höfundur bókar og Ólafur eru báðir ættaðir frá Suðureyri við Súgandafjörð og skyldir í fjórða ættlið, gætu þessi blóðtengsl jafnvel útskýrt söfnunaráráttu okkar beggja. Ólafur var fróður um bókmerki og hafði einlægan áhuga á að safna þeim.
Ólafur sendi bréf á alla sem hann vissi eða grunaði að ættu bókmerki og bað um að fá nokkur eintök af merkinu til að geyma á bókasafninu. Það var sama hvar fólk var staðsett í heiminum, íslenskir eigendur bókmerkja gátu átt von á bréfi frá Ólafi ef hann komst að því að þeir ættu slík merki. Dæmi í bréfasamskiptum hans er þegar hann sendi bréf á erlend bókasöfn eða háskóla þar sem íslenskir nemendur bjuggu. Flest bréfin frá Ólafi innihéldu setninguna „afsakaðu á mér kvabbið“.¹ Bréf hans til prentara landsins voru þó orðuð á annan hátt en bréf til eigenda. Hann leit á það sem einskonar skyldu prentara að skila eintaki af merki sínu í safnið og sættu þeir prentarar sem gleymt höfðu þessari skyldu sinni skömmum frá Ólafi. Hvort Ólafur hafi haft áhuga á listinni í prentinu, fagurfræði merkjanna eða áhugi hans á bókum hafi smitast yfir í þetta safn er erfitt að segja. Úr bréfasamskiptum Ólafs var hægt að sjá að gæði bókasafns eiganda voru honum hugleikin þegar meta átti bókmerkin.
¹ afsakaðu á mér kvabbið þýðir það sama og afsakaðu ónæðið—eða vesenið á mér.
Bókin
Texti: Jónas Björn Pálsson. Bókmerkin eru úr bókmerkjasafni Ólafs F. Hjartar, varðveitt á Landsbókasafni Íslands. Merkin voru skönnuð, gerð svart-hvít og stækkuð fyrir þessa bók.
Letur: Clarendon Light, teiknað af Hermann Eidenbenz 1953 fyrir Haas-steypuna, eftir Clarendon Roberts Besleys frá 1845. Times New Roman, skáletrun teiknuð af Victor Lardent undir stjórn Stanley Morison 1932.
Meginmál: 10/11,75 pt.
Brot: 111×180 mm.
Bókbelti: Marmarapappír, skannaður af bókinni Bréf Tómasar Sæmundssonar, 1907.
Prentun: Shenzhen, Kína.
Upplag: 500 eintök. Fyrsta prent.
Bjó til prentunar og hannaði: Jónas Björn Pálsson. Reykjavík 2026.
Áttu bókmerki?
Ef þú átt bókmerki sem er ekki í safninu langar mig mjög að sjá það. Sendu mér mynd og seinna langar mig að fá að skanna það.
Sýningin
Hvar fæst bókin
Þakkir
Adam Flint Taylor — Anna Dröfn Ágústsdóttir Atli Hilmarsson — Birna Geirfinnsdóttir Erla S. Árnadóttir — Fraser Muggeridge Gabríel Markan — Hrefna Sigurðardóttir João Linneu — Jóna Hrönn Bolladóttir Landsbókasafn Íslands — Lilja Jónasdóttir Páll Björnsson — Pétur Ástvaldsson Takk fyrir hjálpina.
Vefurinn sýnir 269 bókmerki úr bókinni. Skráningin byggir á myndatextum og nafnaskrá bókarinnar.
(Bókaútgáfa Jónasar)