
Guðni Jónsson, prófessor
• Teiknari: Guðmundur Einarsson
Guðni Jónsson (22. júlí 1901 – 4. mars 1974) var íslenskur sagnfræðingur, doktor í sagnfræði og prófessor við Háskóla Íslands.
Guðni kenndi við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928-1945 en varð þá skólastjóri sama skóla. Hann var mikilvirkur fræðimaður, einkum á sviði ættfræði og sagnfræði, og skrifaði fjölda rita, þar á meðal doktorsritgerð sína, Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi, sem út kom 1952 og hann varði svo ári síðar. Einnig samdi hann ritin Bergsætt, Sögu Hraunshverfis á Eyrarbakka, Stokkseyringa sögu og fleiri rit. Hann annaðist einnig útgáfur fjölda fornrita, meðal annars Íslendingasagna I-XII, sem út komu 1946-1947, Fornaldarsagna Norðurlanda og margra annarra rita. Einnig annaðist hann útgáfu á ritum Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi og fleiri alþýðufræðimanna og gaf út Íslenska sagnaþætti og þjóðsögur I-XII.
Texti af Wikipediu · CC BY-SA 4.0
Myndmál: skip, sjór, hús