Haraldur Haraldsson fann myndina í japönsku dagblaði.

Jón Sveinsson, rithöfundur
• Teiknari: Haraldur Haraldsson
Jón Stefán Sveinsson (16. nóvember 1857 - 16. október 1944) var íslenskur rithöfundur. Hann er þekktur fyrir barnabækur sínar um Nonna og Manna sem fjalla um ævintýri hans (Nonna) og bróður hans (Manna).
Fyrsta Nonnabókin, Nonni, kom út 1913 en alls urðu Nonnabækurnar 12 talsins. Nonnabækurnar fjalla um hin ýmsu ævintýri sem Jón sjálfur lenti í með bróður sínum Ármanni (Manna).
Bækur sínar skrifaði Nonni á þýsku. Þær hafa verið þýddar á 30-40 tungumál og gefnar út í milljónum eintaka. Þar að auki skrifaði hann að minnsta kosti eina landkynningarbók um Ísland á þýsku. Bækurnar komu út í íslenskri þýðingu Freysteins Gunnarssonar á 3. áratug 20. aldar.
Texti af Wikipediu · CC BY-SA 4.0
Myndmál: andlitsmynd