
Matthías Bjarnason, ráðherra
• Teiknari: Sigfús Bjarnason
Matthías Bjarnason (f. á Ísafirði 15. ágúst 1921, d. í Kópavogi 28. febrúar 2014) var íslenskur stjórnmálamaður og fyrrum ráðherra.
Hann var fyrst kjörinn á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vestfjarðakjördæmi árið 1963 og sat samfellt sem þingmaður flokksins til 1995. Hann var sjávarútvegsráðherra og heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar 1974 til 1978 og heilbrigðis- og samgönguráðherra í fyrstu ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og samgöngu- og viðskiptaráðherra í sömu stjórn til 1987.
Út hefur komið bókin Járnkarlinn, skrifuð af Örnólfi Árnasyni sem segir ævisögu Matthíasar.
Texti af Wikipediu · CC BY-SA 4.0
Myndmál: fjall, sjór, skip, fuglar