Ágúst E. Ágústsson prentaði.

Sigurbjörn Einarsson, biskup
• Teiknari: Hörður Bjarnason
Sr. Sigurbjörn Einarsson (30. júní 1911 – 28. ágúst 2008) var biskup Íslands frá árinu 1959 til ársins 1981. Sonur hans var Karl Sigurbjörnsson.
Séra Sigurbjörn Einarsson varð sóknarprestur í Breiðabólstaðarprestakalli á Skógarströnd 1938 og var veitt Hallgrímsprestakall í janúar 1941 og þjónaði þar til 1944 þegar hann var skipaður dósent í guðfræði við Háskóla Íslands þar sem hann hafði verið settur kennari. Hann var skipaður prófessor í guðfræði 1949 og gegndi því starfi til 1959 er hann var vígður biskup Íslands.
Hann þjónaði sem biskup Íslands til ársins 1981.
Sigurbjörn samdi og þýddi mörg ritverk. Þar má nefna Trúarbrögð mannkyns, Opinberun Jóhannesar - skýringar, ævisögu Alberts Schweitzer og kennslurit um trúarbragðasögu og trúarlífssálfræði. Hann gaf einnig út fjölda bóka með greinum, predikunum og hugvekjum og samdi og þýddi fjölda sálma í Sálmabók kirkjunnar.
Texti af Wikipediu · CC BY-SA 4.0