Þetta bókmerki er eitt af best heppnuðu merkjum þessa safns. Merkið er horn af hrúti á appelsínu-gulum bakgrunni. Benedikt átti tvær mismunandi stærðir af merkinu.

Benedikt Sigurjónsson, hæstaréttardómari
• Teiknari ókunnur
Benedikt Sigurjónsson (1916-1986) var íslenskur lögfræðingur og hæstaréttardómari.
Benedikt fæddist þann 24. apríl 1916 í Hólakoti á Reykjaströnd í Skagafirði. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1935 og með embættispróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands 1940. Benedikt var skipaður dómari við hæstarétt 1. janúar 1966 og gegndi hann því embætti til ársins 1981.
Texti af Wikipediu · CC BY-SA 4.0
Myndmál: kind